Natracare vörurnar

Natracare vörurnar eru náttúrulegt og eiturefnalaust val fyrir heilsu þína og umhverfið.

Túrtappar

Vertu viss um hvað þú setur í líkama þinn

Natracare framleiðir einungis lífræna túrtappa. Við erum þeirrar trúar að eiturefni, skordýraeitur eða önnur óæskileg efni ættu að koma nálægt þínum allra viðkvæmustu svæðum.

Túrtapparnir okkar eru einungis gerðir úr 100% lífrænni bómull og þú getur því verið viss um það sem þú setur í líkamann.

Dömubindi

Ekkert plast, ekkert rugl

Meðal pakki af dömubindum getur innihaldið samsvarandi magn af plasti og allt að fimm innkaupapokar. Í framleiðslu þeirra eru oft notuð gervi- og litarefni og jafnvel ilmefni – ekkert sem píkan þín þarf á að halda, hvað þá á blæðingum.

Veldu plastlaust dömubindi framleitt úr náttúrulegum efnum sem anda, hönnuð til að huga vel að húðinni þinni. Dömubindin okkar eru með góða rakadrægni og henta fyrir alla daga blæðinganna.

Innlegg

Lífræn bómull fyrir þig og þín viðkvæmustu svæði

Flest innlegg eru framleidd með gervi-, litar- og jafnvel ilmefnum. Ekkert af þessu er gott fyrir þín viðkvæmustu svæði.

Bómullarinnleggin frá Natracare eru framleidd úr lífrænni bómull og öðrum náttúrulegum efnum. Hönnuð til að anda, vera mjúk við húð og brotna niður í náttúrunni.